155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[11:18]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegur forseti. Við skoðuðum nokkrar fyrirmyndir. Við litum ekki til Björgvinjar og ein af ástæðunum er sú að við erum að reyna að nýta þessa menningarinnviði betur. Við erum með ákveðið fjármagn og við þurfum að huga að því hvernig það nýtist best. Við fundum þessa leið í nánu samstarfi við óperuheiminn og að sjálfsögðu erum við að byggja á reynslu Íslensku óperunnar, en það var mitt mat að það fyrirkomulag væri ekki að skila þeim árangri sem ég vil sjá á vettvangi óperunnar. Íslenska óperan hefur þó þjónað óperulistinni afar vel, en það var mikill vilji innan raða söngvara að fara í þessa vegferð (Forseti hringir.) og hugmyndin hjá Íslensku óperunni, hjá Garðari Cortes heitnum, var alltaf að sköpuð yrði Þjóðarópera með svona fyrirkomulagi.