fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir sína yfirferð og fyrir að ræða við okkur um fjárlagafrumvarpið, sem er mikilvægt hverju sinni. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir að sýna visst frumkvæði í því að forgangsraða innan síns fjárhagsramma sem var gert síðastliðið vor þegar hún forgangsraðaði innan síns ramma fyrir lagabreytingu um listamannalaun. Það er gott fordæmi sem ég hefði kosið að sjá miklu fleiri ráðherra nýta sér. Mér heyrist flestir ráðherrarnir og líka hæstv. ráðherra Lilja Dögg Alfreðsdóttur nefna að fjárframlög væru almennt að hækka í flesta málaflokka, þó kannski mismikið. Eru ekki einhver fleiri svona verkefni sem hún sér fyrir sér innan ramma sem væri hægt að forgangsraða, þannig að hægt væri að setja mikilvægari verkefni fram fyrir þau sem eru kannski búin að sinna sínu hlutverki og skipta yfir? Það væri gaman að heyra af því frá hæstv. ráðherra og hvort það væri þá ráð og hvort hún hafi skoðað það sem stendur í meirihlutaáliti fjárlaganefndar með fjármálaáætlun, hvort rétt væri að setja Ríkisútvarpið aftur á fjárlög, af því að núverandi tekjumódel, í árferði eins og nú er, hefur umbunað Ríkisútvarpinu umfram aðrar stofnanir þar sem það fær bæði fólksfjölgun og fjölgun lögaðila og bætur fyrir það, verðbætt, en fær ekki þessa hagræðingarkröfu á sig. En þetta getur líka verið verra fyrir Ríkisútvarpið í öðru árferði.