fjárlög 2025.
Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ef ég skil hæstv. ráðherra rétt þá er gert ráð fyrir að Kvikmyndasjóður færi í raun fjármuni á milli í stað þess að verið sé að fullfjármagna alla þá sjóði sem eru fyrir hendi og verið er að stofna. Ég spyr hvort hæstv. ráðherra, ef þetta er rétt skilið, álíti að það nái þá þeim markmiðum sem stefnt er að með stofnun þessara sjóða. Ég náði því ekki fyllilega hvort hæstv. ráðherra líti svo á að þessi sjóður til lokafjármögnunar sé ófjármagnaður eða ekki en alla vega virðast aðilar líta svo á. Svo langaði mig kannski bara rétt að benda á það að jafnvel þegar um er að ræða kvikmyndagerð sem að einhverju leyti er af hálfu erlendra aðila, erlend kvikmyndagerð á Íslandi, þá hefur það sýnt sig að það færir miklu meiri peninga til landsins en úr landi. Ég velti fyrir mér hvort það sé endilega rétt að hafa áhyggjur af því að endurgreiðslur eða annað slíkt sé að fara til þeirra aðila, þar sem mér skilst að hver (Forseti hringir.) króna komi þreföld til baka í þessum bransa almennt.