fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. Ferðaþjónustan er ein af burðarstoðum íslensks hagkerfis og það er augljóst að við verðum að nálgast hana með sjálfbærni og umhverfisvernd að leiðarljósi. Nú eru lagðar fram tillögur um aukna gjaldtöku í ferðaþjónustu, þar á meðal innviðagjald á skemmtiferðaskip, sem er vel en það er ekki nóg. Þrátt fyrir að skemmtiferðaskip brenni almennt ekki svartolíu lengur við Íslandsstrendur er mengun frá þessum skipum engu að síður umtalsverð. Þau losa mikið magn af gróðurhúsalofttegundum, svifryki og öðrum skaðlegum efnum sem hafa svo áhrif á loftgæði, lífríki sjávar og heilsu. Auk þess valda þessi skip miklu álagi á innviði landsins, sérstaklega í minni samfélögum þar sem fjöldi ferðamanna getur verið margfaldur íbúafjöldi. Spurningin sem við stöndum frammi fyrir er hvort þau gjöld sem lögð eru á skemmtiferðaskip séu nægjanleg til að vega upp á móti þeirri mengun og því álagi sem fylgir þessari tegund ferðamennsku. Erum við að ná þeim árangri sem við þurfum til að draga úr neikvæðum áhrifum og tryggja verndun náttúrulegra auðlinda okkar?
Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra: Telur ráðherra að þau gjöld sem lögð eru á skemmtiferðaskip í dag muni skila nægum árangri í ljósi þess álags og umhverfisáhrifa sem þessi gerð af ferðamennsku veldur? Einnig vil ég spyrja hvort það komi til greina af hálfu ráðherra að skoða það að setja frekari skorður á komur skemmtiferðaskipa eða jafnvel banna þær alfarið.