155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[11:36]
Horfa

Eva Dögg Davíðsdóttir (Vg):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og vissulega finnst þeirri sem hér stendur jákvætt að verið sé að leggja þetta gjald á skemmtiferðaskip. Ég set að vissu leyti spurningarmerki við hversu nytsamlegt þetta er fyrir byggðarlögin en hef vissulega ekki tölur yfir hversu miklu þetta skilar til smærri sveitarfélaga. Maður hefur kannski frekar heyrt neikvæðar sögur um mikinn ágang og mikla pressu á innviði, en það verður spennandi að fylgjast með því hvernig þetta þróast. Það er mikilvægt að þessi gjöld fari beint í viðhald og skili sér til samfélaganna. Því tengt myndi ég vilja spyrja hæstv. ráðherra um fyrirhugaða álagsstýringu og aðgangsgjöld á viðkvæmum ferðamannastöðum, sem er einnig hluti af þessu nýja fjárlagafrumvarpi. Hvernig verður tryggt að slík gjaldtaka stuðli að raunverulegri vernd náttúrunnar án þess að hún skerði aðgengi almennings að þessum stöðum? (Forseti hringir.) Getum við fundið jafnvægi á milli þess að vernda viðkvæmar náttúruperlur og tryggja öruggt aðgengi, svo að landsmenn geti notið fegurðar landsins óháð efnahag?