155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[11:37]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegur forseti. Einn megintilgangur þess að setja ferðamálastefnu var einmitt að ná betur utan um stýringu á atvinnugreininni, en í mjög góðu samstarfi við atvinnugreinina sjálfa. Þessi atvinnugrein er orðin 9% af landsframleiðslu, skilar 34% af öllum okkar útflutningstekjum. Mig langar að nefna það hér í þingsal að ég var að skoða greiðslujöfnuð þjóðarbúsins og var að bera saman annan ársfjórðung 2023 og 2024. Þar er verulegur samdráttur á þjónustujöfnuðinum og við finnum muninn. Ferðaþjónustan er orðin það mikilvæg varðandi stöðugleika á gjaldeyrismarkaði að það munar um hana um allt land. Við leggjum því mikla áherslu á verðmætasköpun, en við erum auðvitað líka að vinna að álagsstýringu og að gæta að stórkostlegri en viðkvæmri náttúru Íslands. (Forseti hringir.) Þetta er allt inni í þessari ferðamálastefnu sem er algjört framfaraskref fyrir atvinnugreinina.