155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[11:39]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir það tækifæri að eiga orðastað við ráðherra hvers málaflokks hér á þinginu. Það skiptir okkur máli til að ná utan um það sem er að gerast á hverju sviði fyrir sig. Mig langar að nýta tíma minn til að ræða við hæstv. viðskiptaráðherra frekar en menningarráðherra að þessu sinni og þá kannski sérstaklega í ljósi þess að hæstv. ráðherra er forystumaður síns stjórnmálaflokks. Það hefur verið upplýst að úrræði um nýtingu séreignarsparnaðar sem hefur verið við lýði frá síðasta áratug eigi að fella úr gildi á næsta ári. Það er greinilega mjög umdeilt að farið sé í þessa aðgerð akkúrat á þeim tíma þegar við erum að upplifa samdrátt og jafnframt að sjá erfiðleika heimila aukast vegna hárra vaxtagreiðslna. Maður veltir fyrir sér tilgangi þess akkúrat á þessum tímapunkti að ráðast í þessa aðgerð. Hverju skilar hún fyrir ríkissjóð? Það liggur alveg fyrir að þessar aðgerðir hafi skilað fólki miklu og mig langar að biðja hæstv. viðskiptaráðherra um að svara því hvort til greina komi að endurskoða þessa ákvörðun vegna þess að hún hefur skipt marga hópa miklu máli, sérstaklega fólk sem hefur ekki notið annarra úrræða en bara þessa úrræðis, kannski hópa sem eru með aðeins hærri tekjur en lágar tekjur og eru kannski skilgreindir sem millitekjuhópar og hafa kannski ekki notið barnabóta eða vaxtabóta eða þess háttar. Þeir hafa getað nýtt sér þetta úrræði. Ég vil því spyrja hæstv. viðskiptaráðherra hvort það komi til greina að endurskoða þessa ákvörðun.