fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. Það er alveg ljóst að þetta úrræði hefur verið mjög mikilvægt fyrir marga hópa. Eins og ég skil áform fjármála- og efnahagsráðherra þá hefur staðið til í býsna langan tíma að hætta með þetta úrræði séreignarsparnaðar, m.a. vegna þenslu á húsnæðismarkaði. Við erum hins vegar að sjá, eins og hv. þingmaður segir, að vanskilin eru að aukast hjá heimilum og fyrirtækjum og þetta er bara eitthvað sem við þurfum núna að horfa á og fylgjast með í hverjum einasta mánuði þar til verðbólgan lækkar og við sjáum vexti lækka, sem ég bind auðvitað vonir við að gerist miðað við hvernig einkaneysla hefur dregist saman og annað slíkt. En eins og ég skil það þá hefur fjármála- og efnahagsráðherra lagt þetta til. Það hafa komið ýmsar athugasemdir við þetta eins og hv. þingmaður nefnir og eins og ég skil málið þá er verið að skoða þetta mjög alvarlega. En það er mjög erfitt fyrir mig, af því að ég ber ekki ábyrgð á þessari tillögu, að segja nákvæmlega hver staðan er. En ég held að það séu allir meðvitaðir um að þetta getur haft mjög neikvæð áhrif á ákveðna hópa og við tökum það mjög alvarlega og erum að skoða það.