155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[11:43]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hennar svar. Já, það hafa komið fram athugasemdir við þetta. Vissulega höfðum við vitneskju um að þetta stæði til, það lá alla vega fyrir í fyrra að það væri ráðgert að fella þetta úrræði út. En ég heyrði það í ræðum hér í gær, m.a. frá hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni, að Sjálfstæðismenn, Sjálfstæðisflokkurinn eða alla vega einhverjir þingmenn Sjálfstæðisflokksins, teldu óráð að það yrði lagt niður. Ég held að þetta hafi komið inn á borð fyrrverandi fjármálaráðherra, sem var nú Sjálfstæðismaður, þegar þetta var kynnt á sínum tíma, en það er greinilega ekki samstaða í ríkisstjórninni. Þess vegna vildi ég spyrja þennan ráðherra hvort hún taki undir orð ráðherra Sjálfstæðisflokksins um að það sé rétt að viðhalda þessu úrræði.