fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. Það sem er nú svo ágætt við lýðræðið og Alþingi Íslendinga er að framkvæmdarvaldið kemur með frumvörp og við erum hér til að ræða þau og skoða hvort einhverjir annmarkar séu á þeim og hvort við eigum að breyta þeim. Ég held að þetta sé eitt af þeim málum og við höfum auðvitað verið að ræða saman, ég og fjármála- og efnahagsráðherra, um þetta mál. En það er mjög erfitt fyrir mig að segja nákvæmlega til um þetta núna. En við þurfum að vakta stöðu heimilanna gríðarlega vel vegna þess að það eiga sér stað svo miklar breytingar. Vextir á húsnæðislánum hjá sumum bönkum eru komnir í 13,5% eða svo og ég sem viðskiptaráðherra er auðvitað að vakta það. Við birtum skýrslu í fyrra þar sem við vorum að gera úttekt á íslensku fjármálakerfi og bera það saman við hin Norðurlöndin og það er auðvitað mjög alvarlegt ef bankarnir eru að auka vaxtamun og í raun og veru dýpka þá kreppu sem mörg heimili eru í. (Forseti hringir.) Við munum standa þá vakt eins og enginn sé morgundagur.