fjárlög 2025.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Tregða til breytinga — telur hæstv. ráðherra að það sé tregða embættismanna eða stjórnmálamanna? Ansi margir þeirra sem nokkru ráða, alla vega í sumum stjórnarflokkanna, tala fyrir mikilvægi þess að þessi mál séu færð til betri vegar hvað rekstrarumhverfi einkareknu miðlanna varðar. Það blasir við að ekki verða lagðar fram frekari tillögur á þessu kjörtímabili þessarar ríkisstjórnar í ljósi þess að fjárlagafrumvarpið er komið fram og þar fram eftir götunum þannig að það skip er siglt. En það er áhugavert að reyna að átta sig á því hvað það raunverulega er sem stoppar það að gripið sé til aðgerða sem einkareknu miðlarnir telja umtalsvert gagn af og hefur verið tekið býsna vel í, a.m.k. þegar tillögurnar komu fram fyrst. Er tregðan innan embættismannakerfisins, þá augljóslega í fjármálaráðuneytinu, eða er hún pólitísks eðlis og þá væntanlega hjá öðrum hvorum samstarfsflokki Framsóknarflokksins?