155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[11:51]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegur forseti. Það fyrirkomulag sem við erum með á fjölmiðlamarkaði er orðið mjög svipað og er á Norðurlöndunum. Þar er ríkisútvarp. Þar eru svona styrkir til fjölmiðla með nánast nákvæmlega sama fyrirkomulagi. Þar eru líka styrkir við héraðsblöð. Það sem ég gerði, þegar við fórum í þessa vegferð, var að taka upp þetta fyrirkomulag og ég held að það hafi bara reynst býsna farsælt. Ég veit að það er ekki óumdeilt.

En ég vil kannski nefna, vegna þessarar tregðu sem hv. þingmaður fór inn á, og nota sem samanburð að eitt af því sem var mjög brýnt að gera varðandi bókaútgáfu á Íslandi var að koma þar inn í á sínum tíma og þar var þetta endurgreiðslukerfi nýtt og það hefur nýst býsna vel. (Forseti hringir.) Þetta tengist í raun aðferðafræði og hvernig við erum að framkvæma hlutina