fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. Mig svíður að vita af því að börnin mín og barnabörn þurfi að borga margfalda vexti á við þeirra aldurshópa í Evrópu. Núna eru þau að borga þrefalda, fjórfalda vexti miðað við Evrópu og ég velti fyrir mér: Hvernig stendur á því að við erum ekki komin í sambærilega stöðu og Evrópa hvað þetta varðar? Ég get ekki betur séð en að við á Íslandi höfum alltaf borgað hærri vexti en í Evrópu. Hvar eru sársaukamörkin? Hvað getum við sæst á? Getum við sæst á að borga tvöfalda vexti miðað við Evrópu? Ef fólk í Evrópu borgar 3% vexti, sættum við okkur við það að börnin okkar og afkomendur borgi tvöfalda vexti? Þau eru að borga þrefalda og fjórfalda vexti í dag. Hvar eru sársaukamörkin? Sættum við okkur við það að bjóða almenningi á Íslandi upp á það að njóta ekki sambærilegra kjara og eru (Forseti hringir.) í samanburðarlöndunum okkar, löndunum sem við erum alltaf að bera okkur saman við og teljum að við eigum að bera okkur saman við?