fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. Vextir eru fall af verðbólgu og leið og verðbólgan fer niður þá fara vextirnir niður. Ég skil mjög vel að hv. þingmaður hafi áhyggjur af vaxtastiginu og börnunum og barnabörnunum. Ég hef það líka. En á móti kemur að atvinnustig hjá okkur er auðvitað mun betra en í Evrópu. Það sem Evrópa er að kljást við núna er umtalsvert atvinnuleysi hjá ungu fólki, t.d. á Spáni og mjög víða um alla Evrópu, þannig að við þurfum alltaf að líta á þetta í þessu stóra efnahagslega samhengi. Um leið og verðbólgan lækkar þá lækka vextirnir og við erum auðvitað ekkert að sætta okkur við þessa háu vexti. Þess vegna eru ríkisfjármálin aðhaldssöm til að ná þeim niður. Aðeins varðandi vaxtakostnaðinn, ég held að frumvarpið mætti gera betur grein fyrir nettóvaxtagjöldum vegna þess að ríkissjóður á líka eignir sem ríkissjóður er að taka vexti af og þessi tala er ekki eins há og hún kemur fram í fjárlagafrumvarpinu. (Forseti hringir.) Ég tel að það sé ágalli á fjárlagafrumvarpinu vegna þess að það þarf að líta á efnahagsreikninginn í heild.
Mig langar aðeins að nefna líka alveg í lokin (Forseti hringir.) að það er mjög áhugaverð skýrsla sem Mario Draghi var að gefa út um samkeppnisstöðu Evrópu og þar er verið að brýn öll aðildarríki Evrópusambandsins (Forseti hringir.) til að auka verulega verðmætasköpun vegna þess að menn ná bara ekki upp hagvexti. Það er ekki vandamálið hér.