155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[12:00]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf):

Virðulegur forseti. Ég ætla aðeins að víkja af vegi hinnar hefðbundnu umræðu af hálfu minnihlutafólks hér í þinginu og leyfa mér að fagna því sem blasir við okkur í fjárlagafrumvarpinu, að við skulum vera með liðlega 1.400 milljarða til ráðstöfunar á litla Íslandi í smáum og stórum verkefnum, og svo er auðvitað umræðan um það hvernig þetta deilist upp. Mér finnst að við þurfum að hafa það hugfast að við erum lánsöm í þessum efnum hvað tekjurnar varðar.

Varðandi lista- og menningarmál og menningar- og viðskiptamál þá vil ég óska menningar- og viðskiptaráðherra til hamingju með það ofboðslega lofsverða frumkvæði að móta stefnu í ferðamálum, stefnu í sviðslistum, stefnu í kvikmyndum, í tónlist — það er búið að móta stefnu í bókstaflega öllum megingreinum menningarlífsins á Íslandi og ég held að það kunni menn almennt mjög vel að meta.

Þá kemur að fjármögnun menningarlífsins. Ef við horfum til Bandaríkjanna þá er hún nokkurn veginn króna á móti krónu. Þú leggur inn krónu og getur síðan dregið hana frá þínum sköttum. Þetta er mikill hvati fyrir kvikmyndagerð og allar skapandi greinar. Hér erum við með fyrirkomulag þar sem þú getur í 100 millj. kr. verkefni kannski lagt inn eina og hálfa milljón sem fyrirtæki og dregið 300.000 kr. frá eins og um kostnað væri að ræða. Væri ekki tilvalið, hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra, að skipa starfshóp sem myndi móta stefnu til að vera hvati í þeim efnum? Að flétta saman viðskipta- og menningarlíf í auknum mæli auðveldar mönnum að ganga til góðra verka og léttir þar með af ríkinu álögum sem ella mættu nýtast í öðrum greinum.