155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[12:02]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegur forseti. Hv. þingmaður kemur inn á mjög mikilvægt mál, þ.e. hvernig við fjármögnum hinar skapandi greinar. Það sem tíðkast víðast hvar erlendis er að það eru þrjár stoðir, ríki, sveitarfélög og atvinnulíf. Við erum með mjög góða fjármögnun frá ríki og sveitarfélögum eða í kringum 2% af landsframleiðslu, sem er fáheyrt og við getum verið mjög ánægð með það. Það sem við erum að gera núna, og býð ég upp á kynningu fyrir hv. þingmann, er að skoða löggjöfina um almannaheillafélög mjög vel til þess að reyna að stækka þessa stoð atvinnulífsins. Við erum að fara að kynna þá möguleika sem eru innan þessarar löggjafar til þess að fyrirtækin geti komið að þessu. Þar kemur t.d. í ljós að fyrirtæki geta notað allt að 1,5% af veltu sinni og fengið skattafslátt á móti, að því gefnu að stofnuð séu almannaheillafélög utan um viðkomandi listgrein, safn eða annað slíkt. Listasafn Íslands er núna að ríða á vaðið og er að stofna almannaheillafélag til þess að atvinnulífið geti fjárfest í myndlist. Nú ætlum við að taka þetta inn í þessar stefnur og kynna fyrir atvinnulífinu hvernig það getur komið að þessu. Það er mjög mikilvægt að fara í þetta vegna þess að það verða öðruvísi kraftar með því að styrkja þessa stoð betur.