fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra fyrir svarið og að við skulum þegar vera að huga að þessu. Ég held að í framhaldinu mættum við gjarnan skoða hvað við getum gert enn meira og fá til þess sérfræðinga og ráðgjafa sem gætu tekið bestu módelin frá nágrannalöndunum. Það að setja 1.500.000 kr. í góð verkefni og geta fengið 300.000 kr. skattafslátt er bara eins og að efna til kostnaðar, en það mun hjálpa. Einstaklingar geta lagt fram fjármagn og þar eru betri kjör í skattalegu samhengi. En ég held að við ættum að horfa til þess, í ljósi þess hversu öflugar skapandi greinar eru á Íslandi, að hátækni og nýsköpun nýtur á fjórða tug milljarða í fyrirgreiðslu með framlögum og skattafsláttum af ýmsum toga meðan skapandi greinar eru ekki að biðja um neitt í því samhengi heldur hvernig við getum fengið fyrirmyndir frá nágrannalöndum sem gætu orðið okkur til enn betri hvatningar í þessum efnum.