155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[12:06]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegur forseti. Ég er mjög jákvæð gagnvart því að við skoðum þetta enn frekar og ég er mjög ánægð með það hvernig hægt er að nýta löggjöfina um almannaheillafélög og tel að þar séu mikil tækifæri fyrir skapandi greinar. Það verður að segjast eins og er að þeir einstaklingar sem starfa innan skapandi greina eru að gera frábæra hluti og eru okkar bestu sendiherrar á erlendri grundu, og ekki bara á erlendri grundu heldur hér. Ég tel að fjárfesting í listum og menningu sé gríðarlega mikilvæg upp á það að auka samkennd meðal fólks og tel að það sé ein af þessum aðgerðum sem sé mjög mikilvæg núna þegar við erum að ná utan um mjög viðkvæm og erfið mál. Ég held að það séu mörg sóknarfæri innan skapandi greina til að gera betur hvað það varðar. Svo er það mér líka algert hjartans mál að aðgengi að skapandi greinum fyrir börn og ungt fólk sé greitt og að það haldi áfram að vera auðvelt fyrir börn að nálgast þessar mikilvægu greinar.