fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég geri hér grein fyrir málaflokkum innviðaráðherra, sem ná m.a. yfir húsnæðis- og skipulagsmál, sveitarstjórna- og byggðamál og samgöngumál. Í frumvarpi til fjárlaga er gert ráð fyrir að verja um 128 milljörðum kr. til þessara málaflokka og nemur aukning frá fjárlögum yfirstandandi árs 13,8%. Húsnæðismálin eru í brennidepli og vextir eru háir og verðbólga lífseigari en gert hafði verið ráð fyrir. Það hefur töluvert verið rætt hér í þessari umræðu. Við verðum að gera meira til að tryggja nægilegt framboð af húsnæði fyrir fjölskyldur á viðráðanlegu verði og efla enn félagslega hluta kerfisins, hugsa um fólk frekar en fjárfesta.
Stjórnvöld hafa með afgerandi hætti er stigið inn á húsnæðismarkaðinn síðustu ár. Frá því að almenna íbúðakerfið var sett á fót 2016 hafa verið veitt stofnframlög fyrir tæplega 4.000 íbúðir og í aðdraganda kjarasamninga var tekin ákvörðun um að styðja við 1.000 nýjar íbúðir inn á markaðinn. Frumvarpið sem hér er til umræðu sýnir stuðning í formi hlutdeildarlána til fyrstu kaupenda og stuðning við byggingu hagkvæmra íbúða fyrir leigjendur. Samtals nemur þessi stuðningur um 12 milljörðum kr. fyrir utan það að Húsnæðissjóður lánar fjármagn til uppbyggingarinnar, enda er uppbygging á húsnæði af þessu tagi samfélagslegt verkefni sem stjórnvöld styðja af krafti. Frekari stuðningur er við leigjendur í formi húsnæðisbóta fyrir svipaða fjárhæð en húsnæðisbætur hækkuðu um 25% 1. júní síðastliðinn. Að viðbættum lánsheimildum Húsnæðissjóðs leggja stjórnvöld málaflokknum til um 40 milljarða á næsta ári. En húsnæðismál snúast ekki eingöngu um framboð og fjármögnun; gæði húsnæðis skipta líka máli og áhrif á umhverfið því að húsnæði er að jafnaði heimili.
Staða húsnæðismála er þannig að stjórnvöld hafa aldrei varið eins miklu fé til málaflokksins og er nú í fyrsta sinn unnið að húsnæðismálum á grundvelli stefnu, sem hefur verið afgreidd hér í þinginu, og aðgerðaáætlunar. Engu að síður tel ég þörf á því að grípa til enn frekari aðgerða á húsnæðismarkaði og við þurfum að vera óhrædd að ræða róttækar leiðir í þeim efnum.
Í næsta mánuði stefnum við að því að endurskoðuð samgönguáætlun verði lögð fram. Um 62 milljörðum verður varið til samgöngumála á næsta ári í gegnum fjárlög og meira til ef horft er til samvinnuverkefna á höfuðborgarsvæðinu í gegnum samgöngusáttmálann og fyrirhuguð samvinnuverkefni á landsbyggðinni. Bein framlög til samgöngumála hækka um tæp 17% á milli ára, framlag til vegaframkvæmda á höfuðborgarsvæðinu í gegnum samgöngusáttmálann eykst um 4 milljarða kr. og 3 milljarða aukning er til framkvæmda og viðhalds vega á landsbyggðinni. Uppbygging varaflugvalla í Reykjavík, á Akureyri og Egilsstöðum heldur áfram og unnið verður að uppbyggingu minni lendingarstaða svo að þeir geti þjónað hlutverki sínu vegna sjúkra- og almannaflugs. Áhersla á umhverfisvænar samgöngur endurspeglast í frumvarpinu þar sem styrkir til almenningssamgangna aukast um tæp 37% á milli ára þar sem mest munar um framlag til borgarlínu. Þetta er í raun og veru ákveðin áherslubreyting þar sem við leggjum meiri áherslu á almenningssamgöngur, ekki bara hér á höfuðborgarsvæðinu heldur um land allt. Þar erum við í raun og veru að hugsa um umhverfisvæna ferðamáta í þágu loftslags en líka í þágu samfélagsins. Það skiptir bæði máli fyrir fólk og fyrir umhverfi. Á minni þingmálaskrá fyrir þennan vetur er að finna frumvarp til laga um almenningssamgöngur sem verður fyrsti lagabálkur sinnar tegundar.
Síðast en ekki síst vil ég gera grein fyrir framlögum til sveitarfélaga í gegnum jöfnunarsjóð og sértækum framlögum til byggðamála. Lögbundið framlag til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga eykst um 2,3 milljarða kr., eða um 7,5%, en framlag til byggðamála er því til næst óbreytt á milli ára eða um 2 milljarðar kr. Að því sögðu vil ég meina, og mér finnst mikilvægt að halda því til haga í þessari umræðu hér, að byggðamál séu yfir og allt um kring. Þau eru mál okkar allra, ekki bara landsbyggðarinnar, eins og stundum er látið að liggja, heldur mál allra íbúa, rétt eins og málefni þéttbýlissvæðanna er líka mál allra íbúa landsins. Það gildir um þessi mál eins og jafnréttismál, að þau eru samþætt öllum öðrum málaflokkum. Við leggjum áherslu á byggðamál í öllum málaflokkum. Byggðamál og samgöngur eru samofin og það sama má segja um sveitarstjórnarmál, skipulagsmál og húsnæðismál og saman mynda þessir málaflokkar þá heild sem eru innviðir samfélagsins.
Virðulegi forseti. Ég hlakka til umræðunnar.