fjárlög 2025.
Frú forseti. Mig langar að nýta þetta tækifæri til að spyrja hæstv. iðnaðarráðherra út í mál sem er á málaskrá ráðherra og varðar tekjustofna sveitarfélaga og skattlagningu orkumannvirkja. Eins og kunnugt er þá skilaði fyrr á þessu ári starfshópur tillögum til hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra um þessi mál. Þar getur að líta mjög ítarlega umfjöllun en hafi ég skilið tillögur hópsins rétt þá endar hann á því að fjalla aðeins um undanþáguna frá fasteignamatsskyldunni og það að leggja fasteignaskatta á orkumannvirki og að þeir renni til sveitarfélaga, og var nokkuð rætt um skilgreiningu nærsamfélags í því sambandi.
Mig langar til að inna hæstv. ráðherra eftir því hvernig þessar hugmyndir hafi verið unnar áfram í ráðuneyti hennar. Ég vil taka fram að Samfylkingin styður það að hluti af tekjum við orkuöflun renni til nærsamfélagsins, auðvitað þarf þá að skilgreina hvert það er. En það er mjög mikilvægt í okkar huga að það sé staðið þannig að þessu að sveitarstjórnarstigið geti notið þess í heild. Ég held að það sé líka nauðsynlegt að við tökum það samtal hér í þessum sal og auðvitað við hæstv. ráðherra í umhverfis- og samgöngunefndinni vegna þess að útfærsla slíks, sem mér heyrist nokkuð almennur pólitískur vilji fyrir, skiptir á endanum öllu máli.