fjárlög 2025.
Forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir tækifærið til að ræða þetta tiltekna mál hér. Þó að það lúti kannski ekki beint að framlagningu fjárlagafrumvarpsins er þetta sannarlega hluti af rekstrargrunni sveitarfélaganna og er einmitt mikið í umræðunni núna. Það er rétt, sem hv. þingmaður segir, að hér er um að ræða næstu skref á grundvelli vinnu sem var lokið í febrúar sem leið þar sem starfshópur lagði fram skýrslu um skattlagningu orkuvinnslu. En það er alveg ljóst og liggur fyrir að tillögurnar, um það nákvæmlega með hvaða hætti frumvarpið ætti síðan að vera, lágu ekki fyrir í skýrslunni heldur er ljóst að það þarf frekari vinnu til. Tillögurnar voru ekki fullmótaðar, það þarf meiri greiningu og það er það sem liggur fyrir í mínu ráðuneyti. Það er ljóst, að mati starfshóps ráðuneytanna sem var síðan falið á grundvelli þessarar vinnu að vinna frumvarp, og að fenginni umsögn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, sem fer með framkvæmd fasteignaskrár, að þrátt fyrir að skýrslan sé ítarleg og feli sannarlega í sér góðan grunn til að vinna málið áfram eru skýrslurnar ekki fullmótaðar. Þess vegna þarf að vinna frekar úr þeim tillögum og það þarf að fara fram frekari greiningarvinna.
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga hefur samþykkt að greiða fyrir aðkomu utanaðkomandi sérfræðinga til að aðstoða HMS við þá greiningu en gert er ráð fyrir að sú greining geti legið fyrir síðar í haust. Hv. þingmaður spyr líka og veltir fyrir sér samspili slíks tekjuauka fyrir viðkomandi sveitarfélög við framlög úr jöfnunarsjóði og það er líka þáttur, angi málsins, sem þarf að fara yfir. Þetta mun ekki gerast án þess að viðkomandi sveitarfélög verði þá fyrir áhrifum að því er varðar framlög úr jöfnunarsjóði.