fjárlög 2025.
Forseti. Ég þakka hæstv. iðnaðarráðherra svörin og geri mér grein fyrir því að ég er strangt til tekið kannski ekki að ræða hér um efni fjárlagafrumvarpsins en ég ákvað samt að nota tækifærið. Ég held að hér skipti mjög miklu máli að lagt sé í þetta verkefni þannig að við ýkjum ekki enn frekar muninn á milli sveitarfélaganna, ég held að það sé kannski best að orða það þannig. Sveitarfélögin eru bara mannanna verk og mörk þeirra liggja einhvers staðar og þeim má breyta, t.d. með sameiningu þeirra og öðru slíku. Tækifæri þeirra til tekjuöflunar eru auðvitað misjöfn en á endanum er það þannig að þær auðlindir sem verið er að nýta eru í eigu okkar allra. Ég held að það sé mjög mikilvægt að hafa það að leiðarljósi við þessa vinnu að tekið sé tillit til þess að við verðum öll að hafa tekjur af nýtingu þessara auðlinda.