155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[12:19]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. innviðaráðherra fyrir innganginn. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra um samgöngumál. Núna er öðrum áfanga vegar um Dynjandisheiði að ljúka og þá verður búið að setja bundið slitlag á 24 km af 31 og 7 km eftir. Eins og ég skil það þá er ekki búið að ganga frá útboði varðandi þriðja áfangann, upp á að klára það sem eftir er. Það kostar 1,5 milljarða. Spurningin er þessi: Hvað hyggst ráðherrann gera? Hyggst hann ekki beita sér fyrir því að þessari mikilvægu samgöngubót, sem er bundið slitlag á veginn yfir Dynjandisheiði, verði lokið sem allra fyrst?

Ég vil líka spyrja hæstv. ráðherra um brú yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. Hvað líður þeirri framkvæmd? Verður ekki farið í útboð á allra næstu vikum og mánuðum? Hér er líka um gríðarlega mikilvægar vegasamgöngur að ræða. Að fara veginn um Djúpafjörð og Gufufjörð, veg yfir Ófæruháls og Ódrjúgsháls, er eiginlega að fara aftur í tímann, það er eins og maður sé að keyra veg frá 1960 eða 1970.

Í þriðja lagi langar mig að spyrja um Skógarstrandarveg, hvort ekki eigi að fara að gera átak í það að klára hann.

Í fjórða lagi: Hvernig stendur á því að það er ekki verið að grafa nein jarðgöng í dag? Af hverju er það ekki fastur liður á fjárlögum? Nú sit ég í fjárlaganefnd og það er mjög erfitt að koma nýjum útgjaldaliðum inn. Af hverju erum við ekki komin með fastan lið á fjárlögum til að grafa jarðgöng? Er það ekki öruggt mál að það verða Súðavíkurgöng, Miklidalur og Hálfdán, sem verða þar í forgangi? Ég get tekið dæmi um að Súðavíkurgöng eru náttúrlega öryggisatriði, ég get líka farið að tala um Siglufjarðargöngin og það allt. Hvernig stendur á þessu? (Forseti hringir.)

Að lokum langar mig að spyrja: Er það rétt, sem hefur komið fram, að fyrrverandi innviðaráðherra hafi tekið 8 milljarða kr. úr öðrum verkum og sett í Hornafjarðarbrú, sem átti að vera PPP og gjaldtaka, (Forseti hringir.) sem er algjörlega óskiljanlegt miðað við hversu lítil umferð er um Hornafjarðarbrú?