fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Varðandi Dynjandisheiði þá er gríðarlegur vilji til að klára það verkefni og ég get tekið sem dæmi að verktakinn Suðurverk lánaði ríkinu fyrir einum kílómetra í öðrum áfanga. Það er algerlega óskiljanlegt að ekki sé samfella í þessu verkefni og það klárað sem allra fyrst, þetta verkefni sé boðið út sem allra fyrst og að sjálfsögðu það sama varðandi Djúpafjörð og Gufufjörð en á Dynjandisheiði er í gangi framkvæmd og það er mikilvægt að klára hana.
Varðandi samgönguáætlun þá veit ég nú bara að samgönguáætlun er samþykkt en síðan er ekki farið eftir henni. Ráðherrann virðist hafa tekið fé úr verkefni og sett í önnur verkefni, þar á meðal tekið 8 milljarða kr. úr öðrum verkefnum og sett í Hornafjarðarbrú, af því að PPP-verkefnið — svokölluð einkaframkvæmd þar sem átti að vera gjaldtaka á brú sem sáralítil umferð er um miðað við umferð hér á höfuðborgarsvæðinu — átti að fara í útboð sem gengur að sjálfsögðu ekki upp. (Forseti hringir.) Það er ekki verið að fara eftir samgönguáætlun, það er það sem er stóra vandamálið og það er verkefni sem við þurfum að skoða enn betur hér í þinginu.