fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. Ég held að hv. þingmaður þyrfti að eiga orðastað við fyrrverandi innviðaráðherra sem væntanlega hefur svör við þeim ávirðingum sem hv. þingmaður er með. En ég vil hins vegar segja það varðandi Hornafjarðarfljót að bæði í gildandi samgönguáætlun og í þingsályktunartillögunni sem lá fyrir þinginu hér á síðasta þingi kemur fram að stefnt sé að því að innheimt séu veggjöld um brúna yfir Hornafjarðarfljót og að þau muni fjármagna verkefnið að hluta. Það er unnið að útfærslu á því hvernig sú gjaldtaka skili sér aftur inn í ramma samgangna og auki svigrúm til annarra framkvæmda. Það var áætlunin sem unnið var með og var samþykkt hér í þinginu. En mér er alveg ljóst að við þurfum að búa enn betur um þessi mál þegar ég legg fram nýja tillögu í samstarfi við þingið og vænti góðrar samvinnu við hv. umhverfis- og samgöngunefnd um það. Við þurfum að taka betri umræðu (Forseti hringir.) þegar samgönguáætlun er lögð fram um þá þætti sem hv. þingmaður hefur sérstakar áhyggjur af.