155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[12:26]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir umfjöllun sína um hennar þátt í fjárlagafrumvarpinu. Það er hálfósanngjarnt að fá bara tvær mínútur og svo eina til að ræða svona stóran málaflokk við hæstv. ráðherra. Mig langar að nýta tímann til að byrja með á því að spyrja út í samgönguframkvæmdir og framgang þeirra. Alla jafna fara samgönguframkvæmdir af stað samkvæmt samgönguáætlun og áætlun Vegagerðarinnar sem hefur undirbúið þær og það eru einhver frávik, einhver smákostnaðarauki, og stundum er þetta undir áætlun, eins og gengur og gerist. En svo eru einstaka framkvæmdir sem einhvern veginn margfaldast á leiðinni. Eitt dæmi um það er Arnarnesvegur og svo höfum við verið að heyra um Ölfusárbrú og Fossvogsbrúna og svo var aðeins komið inn á brúna yfir Hornafjarðarfljótið sem hefur líka hækkað gríðarlega í verði. Þetta á við opinberar framkvæmdir í fleiri geirum líka, sem maður bara skilur ekki. Mér finnst viðkvæðið allt of oft vera að við séum lögð af stað og verðum að klára verkefnið, en það er aldrei stoppað og spurt hvað hafi farið úrskeiðis og hvernig við getum komið í veg fyrir þetta. Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra hvort það sé í gangi með þær framkvæmdir sem eru ekki farnar af stað, eins og Ölfusárbrú, Fossvogsbrú og jafnvel fleiri framkvæmdir, að spurt sé hvernig við getum komið í veg fyrir þetta. Það þarf líka að skoða hvað svona getur haft mikil áhrif á aðrar samgönguframkvæmdir í landinu, hvort þetta hafi ekki gríðarleg áhrif. Þá spyr ég líka um samspil samgönguáætlunar, fjárlaga og þessarar forgangsröðunar. Þegar svona kemur upp, er ekki rétt að þingið taki það til umræðu hvernig þessum áhrifum verði stýrt en það verði ekki ákveðið af framkvæmdarvaldinu?