fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. Þetta er mjög áhugaverð umræða og mikilvæg og er að hluta til grunnurinn undir þá vinnu sem stendur yfir núna í mínu ráðuneyti og hjá samgönguráði við að útbúa nýja tillögu, á grundvelli þeirrar gömlu, til samgönguáætlunar, að við höfum traustan grunn undir það sem við erum að leggja fram. Hins vegar orkar það svolítið tvímælis og er til umhugsunar að upphæð sé ráðstafað í verkefni í samgönguáætlun og í framkvæmdatöflu en síðan sé annað mál hvernig tekst til og hvaða ákvörðun er tekin varðandi fjárframlög í gegnum fjárlagavinnu. Það verður að halda því til haga að við erum annars vegar að tala um áætlun og hins vegar ákvarðanir um útgjöld. En kostnaðarhækkanir eru því miður mjög algengar, eins og hv. þingmaður nefndi, og vísitala Vegagerðarinnar hefur hækkað um 44% frá því að samgönguáætlun fyrir árin 2020–2024 var lögð fram. Það er sífellt í skoðun hvernig stærri framkvæmdir eru að þróast og mjög mikið í umræðunni. Ég hef lagt áherslu á það að við þurfum líka almennt í opinbera kerfinu, og ég held að það eigi ekki síst við um Vegagerðina af því að þar eru miklar væntingar og háar upphæðir, að leggja áherslu á áætlunargerðina, að verið sé að vinna með hana þannig að hún sé ábyrg og gagnsæ og að hægt sé að kalla fram upplýsingar úr áætluninni og hvernig henni vindur fram í samræmi við einstaka þætti framkvæmdarinnar. Það er líka mjög mikilvægt, ekki síst í ljósi þess að þegar öllu er á botninn hvolft er það þingið sem framkvæmdarvaldið sækir sitt vald til, að þingið sé vel upplýst í hverju skrefi.