fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og hvet hana til dáða í því að halda þinginu vel upplýstu og tryggja gagnsæi í áætlunargerðinni. Ég held að það sé eitt af því sem okkur hefur skort töluvert undanfarið. Ég skil það að vísitala Vegagerðarinnar hækki en ég á erfitt með að skilja það þegar verkefni fá að taka stórkostlegum breytingum og kostnaðurinn hækki þannig, án þess að það komi til þingsins og að ný heimild sé sótt fyrir því.
Í seinni ræðu langaði mig að koma aðeins inn á húsnæðismarkaðinn og húsnæðismálaflokkinn, sem skiptir hvað mestu máli varðandi vexti og verðbólgu sem við erum að takast á við núna, hvort einhver áform séu um að bregðast við með breytingu og einföldun á reglugerðum. Ég talaði um einföldun á skipulagsmálum í fjárlögunum. Líka varðandi uppbyggingu sérbýliseiningahúsa vegna náttúruhamfaranna á Reykjanesi þar sem settur var af stað spretthópur, er eitthvað farið að skýrast hvort hún geti orðið að veruleika?