fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. Ég held að það sé efni í lengra samtal heldur en þessar örfáu mínútur hér að ræða samspil húsnæðismála og húsnæðismarkaðarins annars vegar og hins vegar verðbólguþróunarinnar og vaxtastöðunnar. Vegna þess hversu stór þáttur húsnæðismálin eru í allri þessari efnahagsumræðu skipta þau gríðarlega miklu máli, og líka með þessar vangaveltur sem lúta að innkomu og aðkomu opinberra aðila. Ég sjálf hef þá persónulegu og pólitísku skoðun að ríkið og opinberir aðilar eigi að stíga enn fastar inn en við erum að gera. Ég sjálf hef talað fyrir einingahúsum svo að það liggi fyrir, þó að það hafi ekki orðið niðurstaðan. Ég hef ekki heyrt sérstaklega góð rök fyrir því að það sé ekki niðurstaðan en þannig er það. En við þurfum líka að byggja meira og styðja betur við leigjendur. Það skiptir líka máli að við horfum á húsnæðismarkaðinn allan í heild. (Forseti hringir.) Ég vil síðan hvetja hv. þingmann til að efna til frekara samtals við mig um húsnæðismál.