fjárlög 2025.
Frú forseti. Mig langar aðeins að ræða almenningssamgöngur og kannski byrja á því að lýsa sérstakri ánægju með þá breytingu sem varð við endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, að allt í einu var opnað fyrir það að líta til reksturs sem grunnþáttar í samspili ríkis og sveitarfélaga þar. Samgöngukerfið okkar er nefnilega miklu meira en bara steyptir stöplar og burðarlag og allar þessar verklegu framkvæmdir sem við ræðum gjarnan í þessum sal. Samgöngukerfið er líka öflug vetrarþjónusta í dreifðum byggðum. Samgöngukerfið er líka að strætisvagnarnir séu í góðu lagi og ferðist með þeirri tíðni sem þarf til að fólk geti nýtt sér kerfið. Það að ríkið sé að stíga inn og viðurkenna ábyrgð sína á því að þessi þáttur samgöngukerfisins gangi upp hér á höfuðborgarsvæðinu var því mjög jákvætt skref.
Mig langar að beina sjónum mínum að þessum þætti úti á landsbyggðinni. Almenningssamgöngur á landsbyggðinni eru nefnilega í steik, hafa verið mjög lengi. Landsbyggðarsamtökin skiluðu verkefninu til ríkisins fyrir nokkrum árum. Síðan hefur kerfið í raun verið að drabbast niður ár frá ári. Vegagerðin hefur ekki sett það fé í þetta sem þarf til að halda uppi þjónustu af þeim gæðum sem íbúar landsbyggðarinnar eiga að geta gert kröfu um. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra út í þetta vegna þess að ekki var tekið á þessu í samgönguáætlun forvera hennar. Á það var bent í umsögnum, m.a. frá ungmennaráðum víðs vegar um landið — vegna þess að þetta er stórt hagsmunamál þeirra sem eru yngri í dreifðum byggðum. Við þurfum að tengja saman byggðarkjarna innan fjölkjarnasveitarfélaga. Við þurfum að tengja saman sveitarfélög út um allt og við þurfum að tengja saman landshluta með tíðum ferðum og hagstæðu verði. (Forseti hringir.) Þetta virkar eins og eitthvað sem hægt er að afgreiða strax. Við þurfum ekkert marga starfshópa til að komast áfram hér, (Forseti hringir.) við þurfum bara smápening. Er þetta eitthvað sem ráðherra sér fyrir sér að setja í forgang og jafnvel óháð því hver niðurstaða samgönguáætlunar verður?