fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hvatninguna. Það er gott að hann nefnir þá áherslubreytingu sem á sér stað við uppfærslu á samgöngusáttmálanum, sem lýtur að því að ríkið komi inn í rekstur almenningssamgangna. Það er einfaldlega, eins og hann orðar það, viðurkenning á því að þarna er um að ræða mikilvæga samgönguinnviði sem ríkið á að koma að. Hv. þingmaður nefnir almenningssamgöngur á landsbyggðinni í því samhengi og ég er sammála þingmanninum um að þessir innviðir hafa algerlega dregist aftur úr og ekki hefur tekist að halda þeim í viðunandi horfi. Styrkir til almenningssamgangna á landsbyggðinni hafa þó verið meira en 5 milljarðar á ári undanfarin ár þannig að fjárframlag hefur sannarlega verið reitt af hendi. En það er alveg ljóst að leiðakerfin þarf að endurskoða og það þarf að efla þennan þátt samgangna. Tillögur um bættar almenningssamgöngur til Keflavíkur eru eitt af því sem ég á von á, sem er skýrsla sem er á leiðinni, sem er mjög mikilvæg líka upp á samhengi samgangna hér á suðvesturhorninu við bæði innanlands- og millilandaflug. Raunverulegt og aðgengilegt almenningssamgöngukerfi í tengslum við flugsamgöngur ætti að vera löngu komið á og ætti að vera í lagi.
Ég vil nefna, og það kom fram í fyrra svari við annan þingmann, að ég hef í huga að koma hér með frumvarp til laga um almenningssamgöngur sem ekki hefur verið til hingað til. Það er nú á þingmálaskrá og mun koma fram síðar á þessu þingi. Ég held að það sé gríðarlega mikilvægt í öllu þessu tilliti, (Forseti hringir.) sama hvort það er samgöngusáttmálinn hér á höfuðborgarsvæðinu eða á landsbyggðinni, að við ræðum það hér og komum viðunandi lagaramma utan um þennan mikilvæga þátt samgangna.