fjárlög 2025.
Forseti. Það er gott að heyra að við ráðherra séum sammála um mikilvægi þess að efla almenningssamgöngur um allt land. Þó fyrr hefði verið að eitthvað næðist saman með leið 55, það hefur verið til skammar að við eigum ekki almennilega almenningssamgönguleið út á flugvöll frá höfuðborginni, það er löngu tímabær niðurstaða. Fjárframlag er eitt en síðan er annað að vera með einhverja skynsamlega hönnun á almenningssamgöngukerfinu. Ég fékk það á tilfinninguna, í umfjöllun umhverfis- og samgöngunefndar um samgönguáætlun á síðasta vetri, að heimamenn biðu bara eftir kalli. Öll landshlutasamtök, allar sveitarstjórnir, þegar spurt var út í almenningssamgöngur, höfðu sömu sögu að segja. Kerfið þjónar ekki þörfum heimafólks og þjónar stundum ekki heldur þörfum ferðafólks. Maður spyr sig þá: Hvaða þörfum á þetta kerfi að þjóna? Þarna þarf einfaldlega bara nokkra fundi með fólki sem best þekkir nærsamfélagið og græja síðan almennilegt plan um það hvernig hægt sé að binda alla þessa punkta í leiðanetinu saman til þess að fólk geti (Forseti hringir.) í alvöru átt þess kost að búa hvar sem því sýnist.