fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. Það kemur svo sem ekki á óvart að ég og hv. þingmaður deilum þessu áherslumáli og þessu áhugamáli. Vegagerðin, sem nú ber ábyrgð á framkvæmdinni, hefur verið í samskiptum við heimamenn og í samskiptum við landshlutasamtök í allri þessari skipulagsvinnu og það var planið frá upphafi. En ég verð að segja, og taka undir þau sjónarmið sem fram koma hjá hv. þingmanni, að við erum svolítið þar enn þá að almenningssamgöngur eru ekki fyrsti kaflinn þegar við erum að tala um samgöngumál. Við tölum um þær þegar við erum búin að tala um bílaumferð, það er svona venjan. Það er því ástæða til að það sé raunverulegt pólitískt afl til að lyfta almenningssamgöngum ofar á listann og ég tel í því ljósi að það sé mikilvægt, sem hv. þingmaður nefndi hér í fyrra andsvari, að nefna það með skýrari hætti í uppfærðri samgönguáætlun sem þingið fær hér til umfjöllunar von bráðar.