fjárlög 2025.
Forseti. Það þarf vart að rifja upp hvernig samgönguáætlun var slátrað síðasta vor eða í lok síðasta þings. Þar var fyrst og fremst verið að bera fyrir sig skort á tíma og gögnum þegar það lá fyrir að það var fyrst og fremst ágreiningur innan stjórnarliðsins sem stöðvaði þá áætlun. Afleiðingarnar hafa verið alls konar, m.a. hefur ríkt mikil óvissa um ýmsar framkvæmdir. Mig langar að nefna lokaáfanga Dynjandisheiði, vestur á fjörðum, þar sem staðan er einfaldlega sú að ekki er hægt að klára 7 km lokakafla sem er gríðarlega mikilvæg samgöngubót vegna þess að útboðið strandar á ókláraðri samgönguáætlun. Þetta þýðir einfaldlega að vinnuvélarnar eru á leiðinni í burtu og það getur verið erfitt að ná þeim aftur til baka og mun hafa verulegan kostnað í för með sér.
Virðulegi forseti. Þetta er bara eitt dæmi um seinagang stjórnvalda í samgöngumálum sem er að hafa mikil og vond áhrif. Það kemur fram í bókun Vesturbyggðar vegna þessarar stöðu að ólíðandi sé að ekki sé til staðar gildandi framkvæmdaáætlun í samgöngumálum á Íslandi. Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra hvort hún muni beita sér fyrir því að höggvið verði á þennan hnút og sjá til þess að þessari 900 milljarða samgönguáætlun verði komið upp úr þessum hjólförum og þá einnig að einstakar framkvæmdir sem búið er að samþykkja strandi ekki á einhverju óþarfakarpi á milli stjórnarflokkanna.