155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[12:46]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hennar svar hér, eða hennar viðbragð. En það að samgönguáætlun snerti ekki fjárlög er eitthvað sem ég skil ekki. Ég held að ég hafi verið að ræða fjárlögin þegar ég nefndi samgönguáætlun, hún er auðvitað mikilvægur hluti af fjárlögum. Ég hef skilning á því að við þurfum að ná niður verðbólgu enda höfum við, mörg okkar, talað fyrir því hér í þingsal og munum gera áfram. Ég hef hins vegar áhyggjur af því að ekki sé verið að halda áfram samgöngubótum á sama tíma og við erum að hrúga inn ferðamönnum, tíföldum fjölda á við mannfjölda á Íslandi, með vegakerfi sem hefur ekki dugað fyrir okkur sjálf, hvað þá alla þá ferðamenn sem hingað hafa komið. Ég las fréttir í gær þar sem framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir (Forseti hringir.) að ekki hafi verið gerður samningur í heilt ár. Vegamálastjóri neitar að svara. Ég veit að (Forseti hringir.) Vegagerðin er að gera slíka samninga og það er ekki á borði ráðherra að gera það. Ég veit þó að samningur um Reykjanesbraut var gerður fyrir tilstilli ráðherra. Ég vil því bara hvetja ráðherra til góðra verka í þessu samhengi.