fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hvatninguna og býst við og geri ráð fyrir hans liðsstyrk í því að ljúka hér hratt og vel við samþykkt samgönguáætlunar í þinglegri meðferð. Ég held að það sé gríðarlega mikilvægt. Hv. þingmaður veltir upp spurningu sem lýtur að meira álagi á samgönguinnviði út af ferðaþjónustu og hið aukna álag sem kemur til af þungaflutningum er ekki síður áhyggjuefni. Við erum að sjá miklu meiri þungaflutninga en við gátum gert ráð fyrir jafnvel bara fyrir tíu árum, sem hafa verið að leggjast á mjög viðkvæma hluta samgöngukerfisins hjá okkur, ekki síst á Vestfjörðum og Vesturlandi. Það er afar mikilvægt, og ég hef komið því til Vegagerðarinnar, að hefja markvissa vinnu í þá veru að koma eins miklu og hægt er af þessum flutningum út á sjó, til að létta á þessum innviðum. Þarna er í raun og veru um að ræða álag sem við verðum síðan að bæta, almannavaldið, skattgreiðendur, og má þá segja með réttu að þessi atvinnustarfsemi sé þar með styrkt af skattgreiðendum.