155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[12:49]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma hér til þessarar umræðu. Mig langar fyrst til að spyrja hæstv. ráðherra út í samkomulag sem ráðherrann skrifaði undir 21. ágúst síðastliðinn ásamt tveimur öðrum ráðherrum og síðan bæjarstjórum sveitarfélaga hér á höfuðborgarsvæðinu varðandi samkomulag um rekstur almenningssamgangna, stjórnskipulag og veghald.

Ég vil kannski byrja aðeins á aðdragandanum. Hér var það tilgreint sem ein af forsendunum fyrir lagasetningu sem grundvallaði stofnun Betri samgangna ohf. að ríkissjóður kæmi ekki að rekstri almenningssamgangna á grundvelli þeirrar ákvörðunar, og borgarlínu þar með. Nú liggur fyrir samkomulag sem tekur við í framhaldi af hliðarsamkomulagi sem var gert 2019, um að milljarðurinn yrði framlengdur, sem hafði þá verið á grundvelli samgöngustoppsins sem kallað hefur verið. Mig langar til að spyrja út í mjög afmarkaðan hluta samningsins þar sem segir:

„Ári fyrir akstur á borgarlínuleiðum munu aðilar ganga til samninga um aukið hlutfall ríkisins til rekstursins.“

Þetta er í sömu grein og rammað er inn að ríkið taki 33% af rekstrarhalla sameiginlegs rekstrar Strætó og borgarlínu, væntanlega frá því núna. En þetta er sérstök setning: Ári fyrir akstur á borgarlínuleiðum munu aðilar ganga til samninga um aukið hlutfall. Það er búið að ramma það inn að ríkissjóður ætli að hækka 33% hlutfallið í eitthvað óræðara, en sem er tryggilega hærra.

Mig langar bara að biðja hæstv. innviðaráðherra að fara aðeins yfir það með okkur hér í þinginu hver hugsunin er á bak við þetta, hvort einhver samningsmarkmið liggja fyrir og hvernig þetta á allt að atvikast.