fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir áhugann á samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og ekki síst þeim þáttum sem lúta að aðkomu ríkisins að rekstri almenningssamgangna, Betri samgangna og borgarlínu. Hv. þingmaður spyr sérstaklega um það ákvæði samningsins sem lýtur að því að þarna sé um að ræða 33% og síðan kunni að koma til einhverjar breytingar. Eðli máls samkvæmt er það þannig að þegar komið er á lokametra samningsgerðar þarf að stilla af orðalag og væntingar. Sveitarfélögin vildu meira, ég held að það sé nokkuð ljóst. Ríkið var með sín markmið annars staðar en sveitarfélögin. Samningsmarkmiðin eru bættar samgöngur fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins, það eru sameiginleg samningsmarkmið ríkis og sveitarfélaga. En við leggjum áherslu á það þarna að samtalið sé opið og að við séum reiðubúin til þess að halda þessu samtali áfram. Það er það sem greinin gefur til kynna. Og ekki síst vegna þess að forsendur eru breytilegar.
Við vitum að þegar við erum að gera samning af þessari stærðargráðu til svo langs tíma sem þarna er undir þurfum við að vera tilbúin til þess að meta samningsmarkmiðin og skrefin sem verið er að taka, hversu vel hefur tekist til og hvort ástæða sé til að endurmeta forsendur eins og framkvæmdum vindur fram og samningurinn kemur til framkvæmda. Það er kannski svona skýringin á bak við það orðalag sem þarna er að finna.