155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[12:54]
Horfa

innviðaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Orðin tala fyrir sig sjálf og ákvæðið má lesa og það skýrir sig sjálft. Það er ekki búið að taka ákvörðun um það núna að hlutfallið hækki, það er ekki búið að taka ákvörðun um það, en það er búið að taka ákvörðun um að aðilar ræði saman (BergÓ: Um aukið hlutfall.)— um aukið hlutfall, já. Það er þannig að þetta er plan, virðulegi forseti, og þetta er plan sem lýtur að því að við séum í alvöruskrefum að byggja upp almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu með myndarlegum hætti og með það fyrir augum að við sjáum uppbyggingu og skipulag samgönguinnviða þannig að Reykjavík og höfuðborgarsvæðið standist samanburð við það sem best gerist í löndunum í kringum okkur. Það er það sem við viljum sjá. Það að festa síðan þessa hlutfallstölu í 33% varð niðurstaðan í samningunum eins og þeir (Forseti hringir.) lágu þarna og síðan er þarna að finna þetta ákvæði um áframhaldandi samtal og opnun. Hins vegar er það svo, og það veit hv. þingmaður, að allt er þetta gert með fyrirvara um samþykki fjárlaga.