155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[12:56]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að fagna löngu tímabærri fjáraukningu til almenningssamgangna og fagna því að hæstv. ráðherra geri þetta að áherslumáli. Hér þarf auðvitað að horfa bæði til almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu og um landið, af því að þetta er risastórt velferðar- og loftslagsmál.

Ég vil eiga orðastað við ráðherra um húsnæðismál. Mér svelgdist aðeins á í gærmorgun þegar ég hlustaði á hæstv. fjármálaráðherra tala um fasteignamarkaðinn eins og staða fyrstu kaupenda væri í rauninni með besta móti, þegar sannleikurinn er sá að fasteignaverð hefur aldrei nokkurn tímann frá því að mælingar hófust verið hærra miðað við laun á Íslandi og nú hafa stýrivextir verið 9,25% í heilt ár, sem jafngildir í raun ofurskatti á alla sem skulda. Samkvæmt greiningum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar eru nauðsynlegar mánaðartekjur fyrstu kaupenda til að eiga efni á afborgunum af 30 ára verðtryggðu húsnæðisláni á meðalíbúð með 85% veðsetningarhlutfall 1,1 millj. kr. Þetta eru þær mánaðartekjur sem þarf. Út frá sama mælikvarða hefðu fyrstu kaupendur þurft 630.000 kr. í mánaðartekjur í ársbyrjun 2020, áður en vextir voru keyrðir alveg niður í botn í Covid, þannig að nauðsynlegar mánaðartekjur til að ráða við afborganir af meðalíbúð hafa hækkað um 70% á örfáum árum en á sama tíma hefur launavísitala hækkað um 43%. Maður upplifir hálfgert vonleysi þegar maður talar við ungt fólk um þessa stöðu. Fólk er einhvern veginn að missa alla von um að eignast nokkurn tímann íbúð. Er hæstv. ráðherra jafn ánægð með þessa stöðu mála og fjármálaráðherra virtist vera í gær eða er hæstv. ráðherra sammála mér og okkur í Samfylkingunni um að það ríki beinlínis neyðarástand í húsnæðismálum, (Forseti hringir.) að það sem ég var að lýsa áðan sé neyðarástand sem kalli á mjög afgerandi aðgerðir ríkisvaldsins, bæði bráðaaðgerðir og aðgerðir til lengri tíma? Hvernig ætlar hæstv. ráðherra að nýta þessa mánuði (Forseti hringir.) sem hún hefur í embætti til að bæta úr stöðunni og hvernig birtast þær áherslur í þessum fjárlögum?

(Forseti (JSkúl): Forseti biður hv. þingmenn að virða ræðutíma.)