155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[12:59]
Horfa

innviðaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Það er nú svo heppilegt að fjármálaráðherra svarar fyrir sig og ég svara fyrir mig. Hv. þingmaður spyr mig hvort ég sé sammála því að hér sé neyðarástand. Ég ætla ekki að fara að keppa við hv. þingmann um einhver yfirboð í upphrópunum. Það er hans deild að vinna út frá þeim grunni og þeirri nálgun í þessu samtali. Ég er hins vegar þeirrar skoðunar að það þarf að leggja enn meiri áherslu á stuðning við óhagnaðardrifin húsnæðisfélög, með það að markmiði að auka framboð leiguíbúða fyrir tekjulægri heimili í gegnum stofnframlög og hlutdeildarlánin sem styðja við fyrstu kaupendur með lægri tekjur. Við þurfum að byggja meira og við þurfum að styðja betur við leigjendur. Nú gerum við ráð fyrir í frumvarpi til fjárlaga 26,9 milljörðum til málaflokksins. Sú upphæð hefur aldrei verið hærri. Það verður áfram lögð áhersla á að gera samninga við sveitarfélög um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á grundvelli rammasamnings ríkis og sveitarfélaga. Það skiptir máli. En ég held, virðulegi forseti, að full ástæða sé til að ræða fleiri hugmyndir sem hafa legið í loftinu og ég held að við höfum ekki efni á að sleppa því að tala um tilteknar hugmyndir, til að mynda að sporna við því að húsnæði sé nýtt sem fjárfestingarkostur, svo sem með skattlagningu á sölu íbúða sem eru ekki notaðar til eigin búsetu. Mér finnst það vera til umræðu. Að setja enn frekari takmarkanir á rekstrarleyfisskylda gististarfsemi tel ég að geti verið mjög mikilvægt, einnig að greitt verði fyrir gerð aukaíbúða í íbúðarhúsnæði þegar það er fyrir hendi án þess að slíkt sé á kostnað gæða og að við hugum meira í framtíðinni (Forseti hringir.) að samspili húsnæðis- og samgönguuppbyggingar. Það er kannski meira inn í lengri framtíð en við höfum því miður ekki hugsað nógu mikið um samspil samgangna og skipulags íbúðarbyggðar.