155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[13:03]
Horfa

innviðaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Þetta eru náttúrlega hrikalega stuttar mínútur hérna og hv. þingmaður kom mjög mörgum spurningum að á sinni mínútu. Mig langar í fyrsta lagi að nefna þetta með lóðaframboð sveitarfélaganna. Það er sannarlega umhugsunar- og áhyggjuefni hversu illa hefur gengið að fá sveitarfélögin til að leggja sitt af mörkum. Þingmaðurinn nefnir Reykjavíkurborg en það má enn gera betur og hjá fleiri sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu, en sum þeirra hafa ekki enn skilað neinu í þá umræðu þrátt fyrir rammasamning. Allt í allt, ef ég kann þetta rétt, eru það vel innan við tíu sveitarfélög sem hafa lagt lóðir inn í þennan samning. Mér finnst mjög mikilvægt, af því að hv. þingmaður spyr hvað sé til ráða, að efla samtalið við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu og ég hef í hyggju að boða til mín sveitarfélögin öll á höfuðborgarsvæðinu og ræða þetta á einum fundi. (Forseti hringir.) Ég held að það sé afar mikilvægt að vera ekki í afmörkuðum samskiptum við þessi sveitarfélög heldur heyra í þeim öllum með það hvernig þau sjá fyrir sér uppbyggingaráformin og húsnæðisþörfina í viðkomandi sveitarfélagi (Forseti hringir.) og síðan möguleikana í skipulagi og lóðaframboði. (Forseti hringir.) Svo vil ég segja að lokum, virðulegur forseti og þakka fyrir þolinmæðina, að baráttan við verðbólguna er náttúrlega stóra viðfangsefnið.