155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[13:05]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegi forseti. Mig langar að halda aðeins áfram umræðum sem hér urðu eftir síðustu ræðu hæstv. ráðherra. Við erum að tala um málefnasvið 31, húsnæðis- og skipulagsmál, sem er á ábyrgðarsviði hæstv. innviðaráðherra. Þar koma fram ákveðin markmið, helstu verkefni ársins 2025, með leyfi forseta:

„1. Jafnvægi verði á húsnæðismarkaði þar sem fjölbreytt framboð íbúða mæti þörf og þróun húsnæðis- og leiguverðs sé stöðug.

2. Skilvirk stjórnsýsla og bætt starfsumhverfi mannvirkjagerðar stuðli að auknum gæðum, öryggi, rekjanleika og hagkvæmni íbúðauppbyggingar í jafnvægi við umhverfið.

3. Landsmenn búi við húsnæðisöryggi og jafnrétti í húsnæðismálum […].

4. Framboð íbúða stuðli að virkum vinnumarkaði […].“

Ef ráðherra gæti farið yfir þessi markmið og hvernig hún ætlar að ná þeim, eins og hún byrjaði á rétt áðan, væri mjög gott að fá að heyra það. Ég get nefnilega ekki séð að við séum að ná neinum af þessum markmiðum á næsta ári. Það er ekkert í fjárlagafrumvarpinu sem bendir til þess að við séum að gera það. Stofnframlög eru 7,3 milljarðar í ár og verða 7,3 milljarðar á næsta ári. Og hver er drifkraftur verðbólgunnar? Jú, það er húsnæðisliðurinn. Við erum með 6% verðbólgu í dag, án húsnæðisliðar væri hún 3,6%. Og það er klárt mál að það er skortur á húsnæði eins og enginn væri morgundagurinn. Hvatarnir eru alveg ótrúlegir. Það var fjallað um lóðaskort áðan. Staðreyndin er sú að sveitarfélögin fá auknar tekjur þegar fasteignaverð hækkar. Það er alveg kristaltært. Fasteignir hækka, fasteignamat hækkar, aukin fasteignagjöld. Það að sveitarfélögin séu ekki að standa sig við lóðaframboð kallar á það að við hér á Alþingi og miðstjórnarvaldið grípum til okkar ráða hvað það varðar. Það verður að aftengja þessa hvata sem leiða til þess að sveitarfélögin hagnist á hækkandi húsnæðisverði, þetta er ekki hægt lengur. Eins og fjárfestirinn Warren Buffett sagði: Sýndu mér hverjir hvatar eru innan fyrirtækis og þá skal ég segja þér hvort það græðir eða ekki og hver vegferðin er. Hvatarnir skipta öllu máli hér. (Forseti hringir.) Hvernig ætlar hæstv. innviðaráðherra að taka á þessum málum? Það er ekki hægt að gera það með samtalinu einu.