155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[13:07]
Horfa

innviðaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Mig langar aðeins að rifja það upp að hér í þinginu var samþykkt á síðasta þingi í fyrsta skipti húsnæðisstefna og í þessum römmum, sama hvort það er regluverk, áætlanagerð eða gagnsæi, skráning o.s.frv., hefur mörgu fleygt fram á undanförnum árum. Á grundvelli húsnæðisstefnu sem var samþykkt hér í þinginu voru samþykktar 46 aðgerðir til að ná markmiðum þessarar stefnu, þar á meðal um jafnvægi á húsnæðismarkaði þannig að ríkið er mjög meðvitað um það, hvort sem það er hér á Alþingi eða mitt ráðuneyti, að það er ekki einkamál sveitarfélaganna að byggja húsnæði í landinu en það er hins vegar ekki þannig að sveitarfélögin geti setið hjá. Þau verða að taka þátt í þeirri ábyrgð. Það sem er meginatriðið til þess að vinna að stöðugleika á húsnæðismarkaði er ekki skyndilausnir heldur að leggja ríka áherslu á vandaða langtímaáætlanagerð í húsnæðismálum sem miðar að því að byggja upp í takti við íbúðaþörf og þá þurfa að liggja fyrir góðar upplýsingar, bæði mannfjöldaspá, íbúðaþörf, rauntölur, þar á meðal um byggingarstig o.s.frv. Og á vegum ráðuneytisins og HMS er verið að vinna að því að tryggja að sveitarfélögin öll séu með öflugar húsnæðisáætlanir til að sjá og leggja niður fyrir sér hvernig eigi að mæta þörf íbúanna fyrir húsnæði. Þannig að til þess að tryggja þessa uppbyggingu þá þarf að vera yfirlit yfir lóðir, yfirlit yfir stöðu þeirra o.s.frv. Sveitarfélögin hafa sum hver verið að gera betur í þessum efnum en betur má ef duga skal (Forseti hringir.) og ég vil bara nota þetta tækifæri núna til þess í fyrsta lagi að hvetja þau til dáða og síðan að spyrja hv. þingmann um hans plan í þessum málum.