155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[13:09]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og spurninguna um mitt plan. Ég myndi byrja á því að afnema tengingu húsnæðisverðs og fasteignagjalda, afnema hvatann þannig að sveitarfélögin séu ekki að fá meiri tekjur vegna hækkandi fasteignaverðs. Ég var lögfræðingur Skipulagsstofnunar á sínum tíma og þá sá maður hvað sveitarfélögin eru veik varðandi alla áætlanagerð og svoleiðis þannig að ég tel að ríkið eigi að koma inn á húsnæðismarkaðinn af fullum krafti líkt og það gerði árið 1964 þegar við fórum loksins út úr bröggunum 20 árum eftir síðari heimsstyrjöldina með júnísamkomulaginu 1964. Það var samkomulag ríkis, sveitarfélaga og verkalýðsfélaga um að byggja Breiðholtið. Við þurfum að fara í nákvæmlega sama átak. Af hverju? Af því að fólksfjölgun er búin að vera 15% frá 2017. Við misstum 1.200 íbúðir í Grindavík og við erum með hælisleitendur sem voru 4.200 í fyrra, 4.500 þar á undan sem (Forseti hringir.) hefur líka skapað þrýsting á húsnæðismarkaði þannig að ríkið þarf að koma inn með miklu sterkari krafti. Sveitarfélögin ráða ekki við þetta og hvatarnir eru rangir. Hér þarf ríkið að koma til skjalanna og ég skora á hæstv. innviðaráðherra að gera það.