155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[13:11]
Horfa

innviðaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Já, hv. þingmaður fer hér yfir þessar grundvallarbreytingar sem hafa orðið á íslensku samfélagi á undanförnum árum sem felast fyrst og fremst í því að okkur hefur fjölgað meira á síðustu tíu árum heldur en nokkru sinni áður á tíu ára tímabili í þrjár aldir þannig að við erum að horfast í augu við það að það þarf verulega meira framboð af húsnæði en okkur hefði getað órað fyrir til að mynda ef við hefðum verið að skoða stöðuna fyrir 20 árum. En við erum líka mjög meðvituð um það hverjar þessir áskoranir eru og við vinnum að því núna, mitt ráðuneyti, að koma á samráðsvettvangi stjórnvalda um íbúðaþörf vegna stóraukins íbúafjölda á Íslandi og þessum samráðsvettvangi er ætlað að vinna sviðsmyndagreiningar um íbúðaþörf út frá þróun mannfjölda til næstu fimm ára og til næstu tíu ára með það að markmiði að framboð íbúða mæti fyrirsjáanlegri aukningu á íbúðaþörf vegna (Forseti hringir.) stóraukins íbúafjölda á Íslandi til næstu framtíðar. Þetta er í nýsamþykktri húsnæðisstefnu og aðgerðaáætlun sem er á henni byggð.