155. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[13:15]
Horfa

innviðaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir góða ábendingu. Í grunninn er ég mjög meðvituð um þær áskoranir sem lúta að bæði auknum öfgum í veðurfari, sem eru eitthvað sem við erum þegar farin að sjá og kannski hraðar en okkur óraði fyrir, sérstaklega í Evrópu, en líka hækkun sjávarborðs.

Við höfum stundum rætt undanfarin ár í þinginu um samspil ofanflóðasjóðs, sem er settur á laggirnar af tilteknu tilefni, við forvarnir gegn annars konar náttúruvá og hvernig mætti samþætta þetta og byggja þetta upp saman. Ég tek það með mér inn í ráðuneytið sem hv. þingmaður nefnir, en ég vildi rifja það upp og geri ráð fyrir því að hv. þingmaður sé með það á radar hjá sér að farið var í miklar sjóvarnaaðgerðir í kjölfar óveðursins 2020. Það var hluti af fjárfestingarátaki sem farið var í og svo erum við með, eins og þingmaðurinn þekkir, ákveðin framlög til sjóvarna á samgönguáætlun. En þarna er komið inn á mjög mikilvægan þátt sem er þetta samspil náttúruvár og skipulagsmála og þeirra mismunandi áskorana sem fylgja því. Þetta er auðvitað alltaf spurning um hvernig við forgangsröðum fjármunum. Við þurfum að auka vöktun, skráningu og grunnrannsóknir sem lúta að sambúð náttúruvár, öfga í veðrum, hækkunar sjávarborðs o.s.frv. við mannlífið, hvort sem það er vegagerð, skipulag eða annað. Því er mikilvægt að standa líka vörð um okkar góðu grunnrannsóknastofnanir í þeim efnum, en góð ábending hjá hv. þingmanni.