fjárlög 2025.
Frú forseti. Ég vil þakka góðar viðtökur og treysti því að ráðherra beri þetta inn í ráðuneytið, vegna þess að í samgönguáætluninni sem var fjallað um síðasta vetur var allt of litlu fé varið til sjóvarna. Þetta ákall um áherslu á fyrirbyggjandi aðgerðir og aðstoð við greiningu er skýrt frá sveitarfélögunum, en ekki fleiri orð um það.
Mig langar að spyrja ráðherrann um breytingu sem á sér stað í þessu fjárlagafrumvarpi þar sem teknir eru saman margir ólíkir þræðir varðandi gjaldtöku af umferðinni, bæði af ökutækjum og eldsneyti. Það er verið að fasa út bensín- og olíugjaldið og taka inn kolefnisgjald og kílómetragjald. Þetta á eftir að birtast í mörgum frumvörpum í ólíkum ráðuneytum en í grunninn erum við alltaf að tala um breytur sem snerta eitt og sama kerfið, breytur sem hafa áhrif á það hvort það verði hvati hjá fólki til að skipta yfir í ökutæki sem nota grænni orku og hvort líka verði hvati hjá fólki til að nota þau ökutæki minna. (Forseti hringir.)
Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvaða aðkomu innviðaráðuneytið hefur haft að (Forseti hringir.) heildargreiningu á þessum kerfisbreytingum sem er verið að boða í þessu frumvarpi, (Forseti hringir.) vegna þess að það stóð dálítið á svörum hjá fjármálaráðherra. (Forseti hringir.) Mér líður ekki vel með það að við séum að stíga þessi skref á nokkrum stöðum frekar en að ræða um þetta sem eina heild.