fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. Ég ætla að reyna að svara þessu hratt og vel. Hv. þingmaður er væntanlega að tala um afurð verkefnastofu um fjármögnun samgangna sem lýtur að orkuskiptum og aukinni áherslu á loftslagsmál. Tekin var ákvörðun um það á sínum tíma að verkefnastofan væri í raun og veru á forræði þriggja ráðuneyta, forsætisráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis og innviðaráðuneytis. Það var útgangspunkturinn. Staða verkefnisins er þannig núna að það mun gerast á næstu dögum eða vikum að útlínur að nýju kerfi eða uppfærslu kerfisins verði að finna á samráðsgátt stjórnvalda, þannig að það er markmiðið. Breytingar af þessu tagi, eins og hv. þingmaður réttilega bendir á, lúta að svo mörgum þáttum í mannlegu samfélagi og þarna þarf líka að huga að byggðasjónarmiðum, félagslegu réttlæti, réttlátum umskiptum o.s.frv., (Forseti hringir.) fyrir utan rýmið sem umferðin tekur í borgarlandinu, sem er mér mjög ofarlega í huga. (Forseti hringir.) Það þarf að tvinna alla þessa þætti saman en næsta skref er í raun og veru samráð við almenning.