fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. Að stjórna innviðaráðuneyti er mikið og mikilvægt starf. Þar fer fram utanumhald um málaflokka sem eru samfélaginu mikilvægir. Við höfum meðal annars rætt hérna samgöngumál en mig langar aðeins að ræða í þessari seinni lotu um húsnæðismál í þeim skilningi sem snýr að ungu fólki. Hæstv. ráðherra nefndi stofnframlögin sem hafa verið við lýði, held ég, allt frá því í kjarasamningum 2016 þegar við fengum þar inn framlög í 2400 íbúðir. Það hefur auðvitað hjálpað til að auka framboð á húsnæði fyrir ungt fólk og tekjuminna fólk. Síðan koma hlutdeildarlánin til sögunnar sem að mínu mati var mjög flott framtak, að fara í þessi hlutdeildarlán, sem ættu þá að standa með ungu fólki og hjálpa því til að komast annaðhvort af leigumarkaði sem er bara erfiður, eða úr foreldrahúsum. En mér finnst einhvern veginn eins og þetta úrræði sé ekki að virka sem skyldi. Við sáum auðvitað mikla eftirspurn eftir slíkum lánum á þessu ári og fjármunirnir búnir og síðan var lofað milljarði í viðbót sem hefur staðið á allt sumarið. En ég velti fyrir mér skilyrðunum sem verið er að setja inn í þessi hlutdeildarlán um veðsetningarhlutfall, greiðslubyrðarhlutfall heitir það nú víst, og hvort þetta sé ekki einhver skekkja í þessu, því að þú átt að vera tekjulágur þegar þú færð hlutdeildarlánið en svo þarftu að vera tiltölulega tekjuhár til að geta staðið undir láninu þannig að mér finnst vera ákveðin þversögn í þessu. (Forseti hringir.) Við vitum að ungt fólk hefur sjaldnast miklar tekjur þannig að mig langar aðeins að biðja ráðherra um hennar skoðun á þessu.